fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Sport

Staðreyndir um Mkhitaryan

Armenski snillingurinn er loks að sýna sitt rétta andlit hjá Manchester United

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 14. desember 2016 16:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Henrikh Mkhitaryan virðist loks vera að sýna sitt rétta andlit hjá Manchester United eftir erfiða fyrstu mánuði hjá félaginu sem greiddi Borussia Dortmund hátt í 30 milljónir punda fyrir undirskrift hans í sumar. Mkhitaryan hefur verið frábær í síðustu leikjum, loksins þegar hann fékk traustið frá Jose Mourinho sem farið hefur varlega með armenska snillinginn. Mkhitaryan skoraði sín fyrstu mörk fyrir United í Evrópudeildinni síðustu viku og gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag. Hér eru nokkrar staðreyndir um „Mikka“.


Fótboltafjölskylda

Mkhitaryan fæddist í höfuðborg Armeníu, Yerevan, þann 21. Janúar 1989. Hann sleit þó barnsskónum í Suður-Frakklandi þar sem faðir hans, Hamlet, var atvinnumaður í knattspyrnu. Hamlet, sem lék tvo landsleiki fyrir Armeníu, samdi við franska félagið ASOA Valence þegar Henrikh var aðeins nokkurra mánaða. Hamlet lést langt um aldur fram, aðeins 33 ára, eftir snarpa baráttu við heilaæxli. Mkhitaryan-fjölskyldan fluttist árið 1995 aftur til Yerevan. Systir Henrikhs, Monika, hefur starfað fyrir UEFA þar sem hún var meðal annars aðstoðarkona Michel Platini, fyrrverandi forseta sambandsins, og móðir hans, Marina Taschyan, er stjórnandi hjá armenska knattspyrnusambandinu.

Draumurinn

Mkhitaryan varð ungur staðráðinn í að verða knattspyrnumaður. Sem barn grátbað hann föður sinni um að fá að fara á æfingar með honum. Í Yerevan fór hann að æfa með FC Pyunik, sem er stærsta félag borgarinnar, og kom fljótt í ljós að þar fór hæfileikaríkur drengur.

Stjarna í fæðingu

Eftir að hafa samið við aðallið Pyunik og leikið þar þrjú tímabil, 2006–2009 höfðu útsendarar í Úkraínu veitt honum athygli. Hann gekk til liðs við FC Metalurh Donetsk. Á hans fyrsta og eina tímabili skoraði hann 14 mörk og var orðinn yngsti fyrirliði í sögu félagsins. Stórlið Shakhtar Donetsk sótti hann yfir í hinn enda borgarinnar og þar sló Mkhitaryan í gegn. Félagið vann deild og bikar í Úkraínu þrjú ár í röð og tímabilið 2013/14 var Mkhitaryan markahæsti maður deildarinnar með 25 mörk. Hann varð fljótt eftirsóttur. Hann fékk ofurumboðsmanninn Mino Raiola til að losna frá Shakthar og samdi við Borussia Dortmund. Í Þýskalandi lék hann við hvern sinn fingur í þrjú ár þar til Man Utd keypti hann.

Stjarna í heimalandinu

Mkhitaryan er líklega besti knattspyrnumaður Armeníu frá upphafi. Hann hefur sex sinnum verið kjörinn knattspyrnumaður ársins frá árinu 2009 og sópað að sér ótalmörgum öðrum verðlaunum. Hann hefur skorað 19 mörk í 61 landsleik fyrir Armeníu.

Raunsær og sveigjanlegur

Þrátt fyrir að hafa sýnt klærnar við að losna frá Shakhtar, þegar forsvarsmenn félagsins vildu selja hann til Rússlands, þykir Mkhitaryan jarðbundinn, raunsær og sveigjanlegur. Það hefur verið lykillinn að upprisu hans hjá Man Utd enda ekki margar stórstjörnur sem hefðu sætt sig við að vera settir í frystinn, nýkomnir í nýtt félag. Þrátt fyrir að hafa slegið í gegn hjá Dortmund gekk hann aldrei að því sem vísum hlut að vera í byrjunarliðinu. Hann tók öðrum fram í að leggja mikið á sig við æfingar og vildi alltaf sanna sig fyrir þjálfurum sínum. Hjá Shakhtar fékk hann viðurnefnið „forseti æfingasvæðisins“ því hann bjó bókstaflega þar fremur en í íbúðinni sem félagið útvegaði honum.

Átrúnaðargoðið

Það þarf engan að undra að átrúnaðargoð Mkhitaryan í æsku var Zinedine Zidane, sem var aðalmaðurinn þegar hann var að alast upp í Frakklandi. „Fyrir mér var hann eins og töframaður,“ lét hann eitt sinn hafa eftir sér.

Talar sex tungumál

Mkhitaryan hefur búið víða um ævina og er því mikill tungumálamaður. Auk móðurmálsins talar hann frönsku, portúgölsku, ensku, rússnesku og þýsku.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Stuðningsmenn Liverpool brjálaðir yfir þessari ákvörðun Klopp í kvöld

Stuðningsmenn Liverpool brjálaðir yfir þessari ákvörðun Klopp í kvöld
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Eftir vonbrigðin í gær telja æðstu menn hjá Arsenal að þetta vanti

Eftir vonbrigðin í gær telja æðstu menn hjá Arsenal að þetta vanti
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Eftir vonbrigðin í gær hefur Pep ákveðið hvert aðalskotmark sitt í sumar verður

Eftir vonbrigðin í gær hefur Pep ákveðið hvert aðalskotmark sitt í sumar verður
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Upptaka af lýsandanum fer eins og eldur í sinu – Hlustaðu á hvað hann gerði í beinni

Upptaka af lýsandanum fer eins og eldur í sinu – Hlustaðu á hvað hann gerði í beinni
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Mbappe kveikti bál í Katalóníu eftir leik – 60 manns tókust á

Mbappe kveikti bál í Katalóníu eftir leik – 60 manns tókust á
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Var agndofa þegar Schweinsteiger lýsti framkomu Mourinho hjá United – „Mér var bara sparkað út úr klefanum“

Var agndofa þegar Schweinsteiger lýsti framkomu Mourinho hjá United – „Mér var bara sparkað út úr klefanum“
433Sport
Í gær

Öll stærstu lið Englands vilja sækja þennan bita frá Úkraínu í sumar

Öll stærstu lið Englands vilja sækja þennan bita frá Úkraínu í sumar
433Sport
Í gær

Netverjar hafa tekið eftir atviki sem sást ekki í sjónvarpi – Hafði líklega mikil áhrif á úrslit gærkvöldsins

Netverjar hafa tekið eftir atviki sem sást ekki í sjónvarpi – Hafði líklega mikil áhrif á úrslit gærkvöldsins