fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Sport

Meðalmenn ensku úrvalsdeildarinnar

Þetta eru leikmennirnir sem eru á pari við tölfræðilegt meðaltal helstu flokka

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 16. nóvember 2016 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar kemur að tölfræði í knattspyrnu eru leikmenn oftar en ekki flokkaðir eftir því hvort þeir skari fram úr eða séu að leika undir pari; bestur og lélegastur. En einhvers staðar mitt á milli þessara andstæðu póla afrekanna leynist meðaltalið.

Breska dagblaðið Telegraph birti á dögunum áhugaverða úttekt um þá leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar sem leikið hafa á eða sem næst tölfræðilegu meðaltali í hinum ýmsu flokkum. Úttektin byggir á tölfræði allra þeirra leikmanna sem byrjað hafa að minnsta kosti fimm úrvalsdeildarleiki á tímabilinu. Meðaltal mismunandi tölfræðiupplýsinga fyrir hina ýmsu þætti síðan fundið og meðalmenn deildarinnar afhjúpaðir. Þetta eru þeir, eftir flokkum.


Mynd: EPA

Mynd: EPA

Skotfimi

Wayne Rooney, framherji Manchester United, hefur átt erfitt uppdráttar það sem af er tímabili og miðið hefur einnig verið að svíkja hann þegar hann kemst í færi. Sama má segja um þýsku stjörnuna Mesut Özil hjá Arsenal sem þrátt fyrir að hafa verið í markastuði í Meistaradeildinni hefur ekki stillt miðið í deild.

46,15% skota þeirra félaga hitta markið sem er örlítið yfir meðaltali leikmanna deildarinnar, sem er 45,8%
Þegar kemur að skotnýtingu, þ.e. að klára færin sín, er Christian Benteke, framherji Crystal Palace, algjör meðalmaður. Skorar úr 14,8% skota sinna sem er einmitt meðaltalið.


Mynd: EPA

Mynd: EPA

Sendingar

Hvorugur þeirra Raheem Sterling, leikmanns Manchester City, né Jermain Defoe, leikmanns Sunderland, er þekktur fyrir sendingagetu sínu, og með réttu. Að meðaltali enda 79,8% sendinga þeirra á samherja. Tölfræði sem Pep Guardiola, stjóri City, gæti haft áhyggjur af í ljósi þess hversu mikla áherslu hann leggur á að lið hans haldi boltanum.

Þegar kemur að heppnuðum sendingum á vallarhelmingi andstæðinganna eru Marcos Alonso, bakvörður Chelsea, og Modou Barrow, framherji Swansea, algjörir meðalmenn. 73,2% sendinga þeirra, sóknarmegin við miðju, enda á samherja.


Mynd: EPA

Tæklingar

Það kemur kannski fæstum á óvart að David Luiz, miðvörður Chelsea, er miðlungstæklari. Ásamt sex öðrum leikmönnum, Gael Clichy, Joe Ledley, Jake Livermore, Duncan Watmore, Yannick Bolasie og Geoff Cameron, sem vinna aðeins 72,7% tæklinga sinna.
Varnarskipulag stjóra Chelsea er þó slíkt að liðið hefur, þrátt fyrir meðalmennsku Luiz, haldið hreinu í fimm leikjum í röð.


Mynd: EPA

Fyrirgjafir

Craig Dawson leikmaður West Brom er að upplagi miðvörður og hefur því oft og tíðum verið ankannalegur í bakvarðarstöðunni sem hann er nú að leysa. Sérstaklega þegar kemur að því að flengja fyrirgjafir inn í teig. Tölfræðin sýnir að hann getur bætt sig. 24,02% fyrirgjafa hans finna samherja, sem er rétt undir meðaltali deildarinnar.


Mynd: EPA

Knattrak

Tveir leikmenn, hvor á sínum enda vallarins, eru meðalmenn þegar kemur að því að rekja knöttinn fram hjá andstæðingum sínum. Troy Deeney, framherji Watford, og Matt Lowton, varnarmaður Burnley, sjá við andstæðingum sínum í 55,4% tilfella.


Mynd: EPA

Skallaeinvígi

Ætla mætti að sú staðreynd að hann er nærri tveir metrar á hæð veitti Joel Matip, varnarmanni Liverpool, ákveðið forskot í loftinu. Hinn hávaxni miðvörður vinnur þrátt fyrir það aðeins 50,6% skallaeinvíga sem hann fer í.
Þegar litið er til sóknarskalla, þá er Benteke aftur meðalmaður þegar kemur að því að hitta markið með því að skalla knöttinn. Aðeins 37,5% tilrauna hans með höfðinu enda á markinu.


Markvarsla

Hinn skrautlegi, og oft og tíðum mistæki, markvörður Watford, Heurelho Gomes, er meðalmarkvörður þegar kemur að því að verja skot. Hann ver 67,8% þeirra skota sem enda á marki hans, meðaltal deildarinnar er 67,4%.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Ten Hag hreinskilinn: ,,Hann á skilið fleiri mínútur“

Ten Hag hreinskilinn: ,,Hann á skilið fleiri mínútur“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Goðsögn Manchester United hefði viljað fá að spila þarna á ferlinum

Goðsögn Manchester United hefði viljað fá að spila þarna á ferlinum