Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsmaður í handbolta til 15 ára, hefur ákveðið að hætta að spila með landsliðinu. Leikstjórnandinn, sem er markahæsti leikmaður frönsku úrvalsdeildarinnar, verður ekki í hópi Íslands sem mætir Tékklandi og Úkraínu í undankeppni EM í byrjun næsta mánaðar.
Vísir greinir frá þessu en Geir Sveinsson landsliðsþjálfari tilkynnti um landsliðshópinn í dag. Snorri Steinn skoraði 848 mörk í 257 leikjum fyrir landsliðið. „Þetta var gríðarlega erfið ákvörðun og með þeim erfiðari sem ég hef tekið sem handboltamaður,“ hefur miðillinn eftir Snorra Steini. Ákvörðunin hafi verið að gerjast í honum lengi.
Í síðustu viku tilkynnti annar burðarás landsliðsins undanfarin ár, Alexander Petersson, um að hann væri hættur með landsliðinu. Geir bíður því erfitt verkefni að fylla skörð þessara tveggja lykilmanna í íslenska sóknarleiknum.