Nýr styrkleikalisti FIFA gefinn út
Íslenska karlalandsliðið er í 21. sæti á stykleikalista FIFA, sem gefinn var út í morgun. Ísland fer upp um sex sæti eftir tvo sigra í undankeppni HM; gegn Tyrkjum og Finnum.
Ísland er 13. besta Evrópuþjóðin en langbesta Norðurlandaþjóðin, ef marka má listann. Næsta Skandinavíuland á eftir Íslandi á listanum er Svíþjóð, sem er í 39. sæti. Danir eru í því fimmtugasta og nágrannar okkar, Færeyingar, í því 74.
Argentína er á toppi listans.