Ekki búið að finna nýjan þjálfara
Aron Kristjánsson mun hætta sem landsliðsþjálfari karla í handbolta. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi í hádeginu. Aron nýtti sér uppsagnarákvæði í samningi sínum við HSÍ en það kvað á um að heimild væri til uppsagnar fyrir 1. mars ár hvert.
Á Vísi kemur fram að fullt samkomulag hafi verið með þessa tilhögun og er vísað í orð Guðmundar B. Ólafssonar, formanns HSÍ, þess efnis. Guðmundur hrósaði Aroni fyrir vel unnin störf en sagði að nú væri komið að leiðarlokum.
Íslenska handboltalandsliðið olli miklum vonbrigðum á Evrópumótinu í Póllandi sem nú stendur yfir. Ísland komst ekki í milliriðil mótsins, en það hefur ekki gerst síðan árið 2004. Liðið tapaði illa fyrir Króötum í lokaleik riðilsins og tapaði auk þess fyrir Hvíta-Rússlandi í riðlinum.
Aron sagði að undirbúningur fyrir mótið í Póllandi hefði verið góður og markmiðið hafi verið að ná góðum árangri. Ákveðið varnarslys hafi komið í leiknum gegn Hvíta-Rússlandi, en íslenska liðið tapaði leiknum 39-38. Sá leikur hafi orðið liðinu að falli. Benti hann á að oft væri stutt á milli feigs og ófeigs í handbolta. Sigur gegn Hvíta-Rússlandi hefði skilað Íslandi í milliriðil með tvö stig og sigur gegn Makedóníumönnum hefði komið íslenska liðinu í forkeppni Ólympíuleikanna.
Ekki er búið að finna eftirmann Arons, að sögn Guðmundar, og mun tíminn næstu vikurnar fara í það. Hann sagði að ekki væri bara verið að skoða innlenda þjálfara heldur einnig erlenda þjálfara.