fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Sport

Við erum sterkari andlega

Sverre Jakobsson er sannfærður um endurkomu íslenska liðsins – Ekki landsliðsmenn að ástæðulausu

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 19. janúar 2016 12:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Varnarleikur byggist upp á því að ná trausti manna á milli og stemningu. Það rofnaði í þessum leik og menn fóru að vinna meira sjálfstætt,“ segir Sverre Jakobsson, landsliðsmaður í handknattleik til margra ára, beðinn um að greina hvað klikkaði í varnarleik íslenska liðsins í leiknum við Hvít-Rússa á EM í Póllandi. Þessi mikli varnarmaður er nú í fyrsta sinn í langan tíma ekki með liðinu á stórmóti. Hann segist hafa setið stressaður og spenntur fyrir framan sjónvarpið – eins og aðrir handboltaáhugamenn – þegar Íslendingar töpuðu með minnsta mun fyrir Hvít-Rússum.

Íslenskir stuðningsmenn hafa látið vel í sér heyra á mótinu.
Áfram Ísland! Íslenskir stuðningsmenn hafa látið vel í sér heyra á mótinu.

Mynd: EPA

Varnarleikurinn, sérgrein Sverre, var í molum í leiknum, enda fékk Ísland á sig metfjölda marka. Hinum megin vallarins voru sömu menn, að uppistöðu, í banastuði. Þeir léku við hvern sinn fingur í sókninni. Hvernig fer það saman, að sömu leikmenn séu í banastuði öðrum megin vallarins, en alls ekki þegar hlaupið er aftur fyrir miðlínu? Sverre segir að ef hann hefði svar við því væri hann ekki að þjálfa á Íslandi heldur sennilega í hópi heimsins eftirsóttustu fyrirlesara heims. Íþróttir séu bara stundum svona. „Það er alltaf þessi sama ráðgáta,“ segir hann.

Hefði sett Guðjón framar

Aðspurður segir Sverre ekki auðvelt að segja til um hvort hægt hefði verið að bregðast öðruvísi við mótlætinu í leiknum við Hvít-Rússa. Hann nefnir þó að stundum hafi landsliðinu reynst ágætlega að setja Guðjón Val fyrir framan vörnina og jafnvel taka menn úr umferð. „Við höfum gert það af og til, kannski í smá tíma. Svo kannski dottið niður aftur. Það er kannski eitthvað sem mér datt í hug að hefði verið hægt að prófa. En þjálfarinn stendur bara og fellur með þeim ákvörðunum sem hann tekur.“

„Það verður einn leikur“

„Það verður einn leikur“

Guðjón Valur Sigurðsson landsliðsfyrirliði kallaði eftir því fyrir mótið að fá einn leik þar sem allt væri undir. Það gerði hann í Handvarpinu, hlaðvarpi Vísis, fyrir mótið. „Það verður einn leikur sem verður allt eða ekkert leikur. Ég vil fá að komast í svoleiðis leik og fá svoleiðis stund.“ Guðjóni verður að ósk sinni í dag, gegn Króötum. Þar verður allt undir. „Þar fáum við að sjá hvar við stöndum og fyrir hvað menn eru búnir að vera að æfa fyrir,“ sagði fyrirliðinn.

Hann segist hafa veitt því athygli að ákveðið óöryggi hafi magnast upp í varnarleiknum. „Þá fara menn að bakka undan mönnum í stað þess að taka slaginn. Þá koma skotin yfir mann og sjálfstraustið dettur niður. Það eru bara eðlileg viðbrögð. Maður finnur ekki tenginguna við markvörðinn og næstu menn í vörninni og upplifir sig einan. Þegar allir upplifa þetta sama verður erfitt að búa til tengingu.“

Hann tekur fram að á köflum í fyrri hálfleik hafi vörnin staðið ágætlega en að síðustu 20 mínútur leiksins hafi verið sérstaklega erfiðar. „Sem gömlum varnarmanni var leiðinlegt að sjá þetta ekki smella.“

Allt getur gerst

Þó að síðasti leikur hafi verið slæmur hefur Sverre engar áhyggjur af liðinu. Það hafi stundum þurft að taka sig saman í andlitinu á skemmri tíma en nú, en Íslendingar og Króatar standa bæði frammi fyrir því að geta dottið úr leik ef þeir tapa. Annað liðið gæti þó komist áfram ef úrslit í leik Norðmanna og Hvít-Rússa verða hagstæð. Vinni Norðmenn í dag, þriðjudag, verða Íslendingar að ná jafntefli eða sigra Króatíu. Ef Hvít-Rússar vinna eru Íslendingar komnir áfram í milliriðil en leikurinn við Króatíu ræður því hvort Íslendingar fara með 0, 1 eða 2 stig áfram. Jafntefli í leik Noregs og Hvít-Rússa þýðir að við þurfum að fá stig út úr okkar leik. Það getur þó ýmislegt gerst.

Sverre, sem spáði því fyrir mót að Íslendingar færu langt í mótinu, hefur enn bullandi trú á strákunum okkar. Þeir hafi margoft áður bitið frá sér þegar bakið er komið upp við vegg. Það hafi gerst í Austurríki 2010 þegar Íslendingar unnu Dani í lokaleik riðilsins og komu heim með brons. Þá hafi margir verið búnir að afskrifa liðið á HM í Þýskalandi 2007, þegar liðið tapaði á móti Úkraínu, en valtaði svo yfir Frakka og komst í 8-liða úrslit.

Krafta Sverre Jakobssonar nýtur ekki við lengur.
Landsliðsskórnir á hilluna Krafta Sverre Jakobssonar nýtur ekki við lengur.

Mynd: EPA

Ekki landsliðsmenn að ástæðulausu

Hann segir að strákarnir okkar séu ekki landsliðsmenn að ástæðulausu. Þeir séu andlega sterkir og þrautreyndir. „Þetta verður mjög forvitnilegur leikur. Ég held að við séum sterkari andlega en Króatar – sem lið. Það er mín upplifun af þessum liðum.“ Hann segir mikilvægt að byrja leikinn við Króata vel og að vörnin endurheimti sjálfstraustið sem hún á að geta haft. „Björgvin þarf að verja tvo eða þrjá bolta snemma – þá myndast tenging og grunnur til að byggja á. Það væri óskandi. Ég hef mikla trú á því að þeir nái þessu úr sér á morgun,“ segir Sverre og bendir á að liðið hafi leikið tvo fína leiki við Þjóðverja og annan við Norðmenn mjög nýlega. Það sé því allt of snemmt að afskrifa liðið.

Sameiginleg ákvörðun

Hann á ekki von á að Ísland muni umbylta varnarleiknum gegn Króötum, þó að liðinu hafi gengið illa að stöðva Hvít-Rússa. Hann gerir þó ráð fyrir því að varnarleikurinn verði eitthvað lagaður að styrkleikum Króata. „Ég held að þeir prófi áfram að vinna að því sem þeir hafa verið að gera og hafa svo plan B ef það klikkar.“ Hann segir að það sé ákvörðun sem þeir sem spila vörnina taki sameiginlega á fundum í aðdraganda leiksins við Króata. „Þetta verður rætt fram og til baka á vídeófundum.“

Hann viðurkennir aðspurður að hafa klæjað í fingurna þegar hann fylgdist með strákunum á móti Hvít-Rússum. Það hafi verið erfitt að horfa upp á vörnina klikka. „Auðvitað klæjaði mig – en mig klæjaði líka á móti Norðmönnum þegar okkur gekk vel.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Ten Hag hreinskilinn: ,,Hann á skilið fleiri mínútur“

Ten Hag hreinskilinn: ,,Hann á skilið fleiri mínútur“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United

Gengi hans á Ítalíu gæti haft áhrif á Manchester United
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Goðsögn Manchester United hefði viljað fá að spila þarna á ferlinum

Goðsögn Manchester United hefði viljað fá að spila þarna á ferlinum