fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Sport

Ísland vann Noreg í rafmagnaðri viðureign

Ritstjórn DV
Föstudaginn 15. janúar 2016 19:03

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ísland vann sigur í fyrsta leik sínum á Evrópumótinu í handknattleik sem var að ljúka. Íslendingar unnu Norðmenn með eins marks mun, 26-25 í gríðarlega dramatískum leik.

Guðjón Valur Sigurðsson fyrirliði skoraði sigurmarkið tíu sekúndum fyrir leikslok en hetja leiksins var Björgvin Páll Gústavsson sem varði skot Norðmanna á síðustu sekúndum leiksins og tryggði íslenska liðinu sigur.

Leikurinn var í járnum allan tíman og leiddu Norðmenn hann með einu marki í hálfleik, 11-10. Íslenska liðið náði forystu um miðbik seinni hálfleiks og leiddu með tveimur til þremur mörkum þar til undir lokin þegar Norðmenn náðu að jafna. Strákarnir héldu haus og náðu að landa gríðarlega mikilvægum sigri.

Aron Pálmarsson var gjörsamlega stórkostlegur í leiknum og skoraði 8 mörk í öllum regnbogans litum.

Aron dró vagninn í sóknarleik íslenska liðsins og sýndi að hann er einna besti, ef ekki besti, handknattleiksmaður í heiminum í dag. Þá átti Guðmundur Hólmar Helgason, yngsti leikmaður liðsins, sannkallaðan stjörnuleik í vörn íslenska liðsins.

Frábær byrjun íslenska liðsins í mótinu og gríðarlega mikilvæg stig í hús.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Eyðir hverri einustu mynd eftir að hafa verið fitusmánuð fyrir framan alþjóð – Unnusti hennar er heimsfrægur

Eyðir hverri einustu mynd eftir að hafa verið fitusmánuð fyrir framan alþjóð – Unnusti hennar er heimsfrægur
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Setja vermiða á stjórann sem Liverpool vill fá – Mjög vegleg upphæð

Setja vermiða á stjórann sem Liverpool vill fá – Mjög vegleg upphæð
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Tveir handteknir grunaðir um að hafa nauðgað konu á föstudag

Tveir handteknir grunaðir um að hafa nauðgað konu á föstudag
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Leikmenn Coventry steinhissa á því hversu lélegur þessi leikmaður United var

Leikmenn Coventry steinhissa á því hversu lélegur þessi leikmaður United var