Lampard býst við hörkuleik í kvöld

Evrópumeistararnir hefja titilvörn sína gegn Juventus

Evrópumeistarar Chelsea hefja titilvörn sína í Meistaradeild Evrópu í kvöld þegar þeir mæta Ítalíumeisturum Juventus í E-riðli. Búast má við hörkuleik enda hafa bæði lið hafið tímabilið af krafti; Chelsea er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar á meðan Juventus er á toppnum á Ítalíu með fullt hús stiga.

Frank Lampard, leikmaður Chelsea, býst við hörkuleik og segir að ekki megi vanmeta Ítalíumeistaranna. „Við vitum að leikurinn gegn Juventus verður ekki auðveldur. Þeir eru mjög sterkt lið og unnu ítölsku deildina í fyrra án þess að tapa leik.“

Manchester United tekur á móti Tyrklandsmeisturum Galatasaray í H-riðli og má þar einnig búast við hörkuleik. Galatasaray er á toppnum í Tyrklandi en United í öðru sæti á Englandi. United-menn fara í leikinn minnugir ófaranna frá því í fyrra þegar þeir komust ekki upp úr riðlakeppninni. Fatih Terim, stjóri Galatasaray, segist hvergi banginn. „United er risastór klúbbur. Við berum virðingu fyrir þeim en óttumst þá ekki. Við förum til Englands til að ná í góð úrslit,“ segir hann en í liði Galatasaray eru leikmenn sem hafa leikið á Englandi, svo sem Milan Baros, Emmanuel Eboue, Albert Riera og Johan Elmander.

Barcelona tekur á móti Spartak Moskvu á Nou Camp í G-riðli í leik sem ætti að verða nokkuð þægilegur fyrir heimamenn. Spartak er í sjötta sæti í rússnesku deildinni eftir átta umferðir en Börsungar tróna á toppi spænsku deildarinnar. Þá má loks búast við hörkuleik þegar Bayern Munchen tekur á móti Valencia í F-riðli. Þjóðverjarnir eru á toppi þýsku deildarinnar með fullt hús stiga en Valencia hefur farið rólega af stað í spænsku deildinni, sitja í 10. sæti.

Leikir kvöldsins:

H-riðill

Chelsea - Juventus

Shakthar Donetsk - Nordsjælland

F-riðill

Bayern Munchen - Valencia

Lille - BATE Borisov

G-riðill

Barcelona - Spartak Moskva

Celtic - Benfica

H-riðill

Braga - CFR Cluj

Manchester United - Galatasaray


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.