Landsliðsþjálfari Kýpur lítur á leik sinna manna við Íslands í undanriðli fyrir Heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu sem hreinan og beinan úrslitaleik.
Spjallaði þjálfarinn, Nicos Nioplias. við blaðamenn í morgun um landsleikinn sem fram fer í dag og viðhafði stór orð um þann leik. Kýpur þyrfti nauðsynlega á góðum úrslitum að halda.
„Fyrir okkur er þetta ekkert minna en úrslitaleikur. Ef við sigrum ekki leikinn verðum við strax komnir vel á eftir öðrum þjóðum í okkar riðli. Við þurfum sigur og hvað sem það kostar.“
Aðspurður um möguleika Kýpverska landsliðsins gegn Íslandi tók Nioplas þó vægar til orða. „Við megum ekki mæta hræddir til leiks. Mótherjarnir eru í afar góðu formi og við megum ekki gleyma að Íslendingarnir eru í skýjunum eftir sigur á Norðmönnum. Það gerir þá enn hættulegri en ella.“
Kýpur tapaði fyrsta leik sínum í riðlinum á föstudaginn var 3-1 gegn Albaníu meðan Ísland hafði betur gegn Norðmönnum.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013