Fagnað gífurlega þegar hún kom langsíðust í mark

„Þetta er mikill heiður og mögnuð upplifun“

Sarah Attar kom í mark langsíðust í átta hundruð metra hlaupi kvenna á Ólympíuleikunum í London í gær. Hún var þrjátíu sekúndum á eftir næsta keppanda og 43 sekúndum á eftir sigurvegara hlaupsins. Áhorfendur fögnuðu henni þó gífurlega þegar hún kom í mark en hún er fyrsta konan frá Sádi -Arabíu sem keppir í frjálsíþróttum á Ólympíuleikunum. Attar er önnur konan sem tekur þátt á Ólympíuleikunum fyrir Sádi-Arabíu en fimm dögum áður hafði kona keppt í júdó á leikunum fyrir þessa íhaldssömu þjóð.

„Þetta er mikill heiður og mögnuð upplifun að fá að vera fulltrúi sádiarabískra kvenna á leikunum,“ sagði Attar við blaðamenn eftir leikana. „Þetta hefur vonandi í för með sér miklar breytingar.“

Þessi nítján ára gamla stúlka hljóp átta hundruð metrana á tveimur mínútum og fjörutíu og fjórum sekúndum. Henni fannst þó tíminn vera algjört aukaatriði.

Móðir hennar er bandarísk en faðir hennar frá Sádi-Arabíu. Hún er með tvöfalt ríkisfang og stundar nám við Pepperdine-háskólann nærri Los Angeles í Bandaríkjunum.

Attar vildi fara á Ólympíuleikana til að hvetja konur til dáða.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.