Ungverjaland var yfir með sextán mörkum gegn tólf í handboltaleiknum gegn íslenska landsliðinu í hálfleik.
Íslendingar voru undir fram að nítjándu mínútu þegar forskot náðist í stutta stund. Strákarnir töpuðu forskotinu fljótt og voru Ungverjar yfir þegar leikhlé nálgaðist.
Liðin eru að keppa í átta liða úrslitum á Ólympíuleikunum.
Í seinni hálfleik skoruðu Ungverjar strax og varð þá staðan 17 - 12 fyrir þeim. En þá kom kraftur í strákana og skoruðu þeir fjögur mörk í röð og náðu næstum því að jafna. Eftir það voru Ungverjar yfir í nokkurn tíma þar til tókst að jafna leikinn þegar rétt rúmlega 20 mínútur voru liðnar af seinni hálfleik.
Ungverjar tóku aftur forystu og varð staðan 24-26 og tókst Íslendingum aftur að jafna með því að skora tvö mörk í röð. Íslendingar komust svo yfir þegar tæpar tvær mínútur voru í leikslok.
Uppfært klukkan 11:24: Staðan er 27-26 Íslendingum í hag.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013