Ólafur Stefánsson er „svalasti íþróttamaður Ólympíuleikanna“

Bandarískur íþróttafréttamaður leynir ekki aðdáun sinni á Ólafi

„Eftir að ég hafði fylgst með Ólafi Stefánssyni í tíu mínútur varð ég sannfærður um að hann væri svalasti íþróttamaður Ólympíuleikanna,“ segir bandaríski íþróttafréttamaðurinn og bloggarinn Joe Posnanski.

Joe Posnanski fjallar ítarlega um Ólaf Stefánsson, fyrirliða íslenska landsliðsins í handbolta á bloggsíðu sinni. Hann segir að eftir að hafa séð snilldartakta Ólaf Stefánssonar í leik Íslands á móti Bretlandi sé hann sannfærður um að Ólafur sé svalasti íþróttamaður allra Ólympíuleikanna.

En Posnaski er ekki einungis hrifinn af Ólafi innan vallar heldur fjallar Posnanski einnig um heimspekileg viðhorf Ólafs á bloggsíðu sinni, til dæmis að Ólafur hafi mikinn áhuga á vísindum og trúarbrögðum. Sjá má umfjöllun bloggarans um Ólaf hér.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.