Þjóðverjinn Stephan Feck datt úr leik á Ólympíuleikunum í London eftir þessa dýfu af þriggja metra háu stökkbretti. Dýfan þótti það slæm að hún er talin ein sú versta í sögu Ólympíuleikana og hefur hún nú slegið í gegn á Netinu.
Allt virtist með felldu þegar Feck lét sig vaða af brettinu en hann missti jafnvægið vegna mistaka í loftinu og lenti fremur harkalega í lauginni.
Mistökin áttu sér stað í undanriðli en þar varð Feck síðastur með 133,80 stig, 167 stigum á eftir næsta manni. Hann fékk augljóslega falleinkunn fyrir þessa dýfu.
Nafn hans, Feck, hefur ekki heldur minnkað áhugann á dýfunni og hafa erlendir blaðamenn keppst við að setja það í samhengi við mikið notað enskt blótsyrði. „Hvað í Feckanum gerðist,“ spurði Ryan Hudson á vefsíðunni SB Nation. „Hann framkvæmdi eina þá verstu dýfu sem sést hefur í keppni á Ólympíuleikunum, og gerði sig um leið ódauðlegan á Netinu,“ skrifaði Hudson.
Pistlahöfundur Yahoo Sports, Greg Wyshynski, sagði Feck hafa í raun kryddað dýfingakeppnina með þessari frammistöðu. Greg sagði það geta verið leiðigjarnt að sjá hverja dýfu nánast fullkomna og náði því Feck að glæða keppnina nýju lífi. „En þegar öllu er á botninn hvolft, þá náði gaurinn inn á Ólympíuleikana og er örugglega Feck-sama,“ skrifaði Greg.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013