Óttast að smokkum hafi verið dreift í óleyfi

Durex á réttinn til þess að dreifa smokkum í Ólympíuþorpinu

Verið er að rannsaka það hvernig fata af smokkum sem ekki eru af gerðinni Durex rataði inn í Ólympíuþorpið í London. Durex átti réttinn á því að dreifa smokkum á svæðinu og gaf fyrirtækið íþróttamönnum leikanna alls rúmlega 150 þúsund smokka.

Það var áströlsk hjólreiðakona sem tók mynd af fötunni og birti á Twitter, en fatan var full af verjum af gerðinni Kangaroo. Þeir eru framleiddir af samkeppnisaðila Durex og eru forsvarsmenn félagsins ekki par sáttir við málið.

Guardian greinir frá því að málið verði rannsakað og farið verði fram á að Kangaroo smokkunum verði ekki dreift ókeypis í þorpinu. Talsmaður Kangaroo segir fyrirtækið ekki vita til þess að það sé verið að gefa smokka frá þeim í Ólympíuþorpinu en félagið hefur þó gefið út gylltan smokk fyrir afreksíþróttafólk.

Íþróttamennirnir mega vitaskuld taka með sér ýmsar vörur til persónulegra nota en óvíst er hvaðan fatan kemur.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.