Ísland tapaði fyrir Ungverjalandi í hreint út sagt ótrúlegri viðureign liðanna í dag. Leikurinn fór í tvær framlengingar og voru Íslendingar nokkrum sinnum yfir í leiknum.
Þegar tuttugu sekúndur voru eftir af leiknum, fyrir framlengingarnar, var Ísland yfir, með 27 mörk gegn 26 eftir að hafa verið undir næstum allan leikinn. Guðmundur Guðmundsson þjálfari tók þá leikhlé. Ólafur Stefánsson fór í sókn og var brotið á honum svo víti var dæmt gegn Ungverjunum. Ekki tókst að skora úr vítaspyrnunni og strax í kjölfarið fóru Ungverjar í sókn og skoruðu. Staðan varð 27 gegn 27, og leikurinn fór því í framlengingu. Íslendingar voru þarna næstum því búnir að sigra leikinn.
Voru yfir í hálfleik
Ungverjaland var yfir með sextán mörkum gegn tólf í hálfleik. Íslendingar voru undir fram að nítjándu mínútu þegar forskot náðist í stutta stund. Strákarnir töpuðu forskotinu fljótt og voru Ungverjar komnir aftur yfir þegar leikhlé nálgaðist.
Í seinni hálfleik skoruðu Ungverjar strax og varð þá staðan 17 - 12 fyrir þeim. En þá kom kraftur í strákana og skoruðu þeir fjögur mörk í röð og náðu næstum því að jafna. Eftir það voru Ungverjar yfir í nokkurn tíma þar til tókst að jafna leikinn þegar rétt rúmlega 20 mínútur voru liðnar af seinni hálfleik.
Ungverjar tóku aftur forystu og varð staðan 24-26 og tókst Íslendingum þá aftur að jafna með því að skora tvö mörk í röð. Íslendingar komust svo yfir þegar tæpar tvær mínútur voru í leikslok. Sem áður segir náðu Ungverjar að jafna aftur og fór leikurinn því í framlengingu. Fyrri framlengingu lauk einnig með jafntefli og fór því leikurinn í aðra framlengingu.
Eftir fyrri hálfleik seinni framlengingar voru Ungverjar einu marki yfir. Þeir innsigluðu svo sigurinn í seinni hálfleik með 34 mörkum gegn 33.
Liðin voru að keppa í átta liða úrslitum á Ólympíuleikunum.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum