„Hversu fáfrótt er þetta fólk, talandi um hárið hennar?“ Spurði móðir bandarísku fimleikakonunnar Gabby Douglas. Eftir að hafa vakið athygli fyrir vaska framgöngu á Ólympíuleikunum í London, þar sem hún hafði meðal annars unnið til tvenna gullverðlauna, brá Gabby Douglas heldur betur í brún þegar hún sá að netverjar voru uppteknir af hárgreiðslu hennar, fremur en frammistöðu hennar á leikunum.
Gabby hefur sjálf svarað þessari gagnrýni þar sem hún sagði það vera ótrúlega heimskulegt að gagnrýna hárið hennar í stað þess að horfa á frammistöðuna. Nú hefur móðir hennar, Natalie Hawkins, varið dóttur sína opinberlega vegna þessara ummæla. „Eruð þið að reyna að eyðileggja sjálfstraust hennar,“ sagði Natalie við Fashionista.com.
„Í alvöru? Ég er búin að fá tvenn gullverðlaun og fólk er að hugsa um hárið mitt,“ sagði Gabby þegar hún tjáði sig um þessa gagnrýni. Gagnrýnendum hennar fannst mörgum hverjum hárgreiðsla hennar ekki sæma fimleikakonu og töldu hana eiga að notast við samskonar hárgreiðslu og er til siðs hjá ballerínum.
Eftir að Gabby lenti í neðsta sæti fyrir frammistöðu sína á tvíslá á Ólympíuleikunum velta menn því fyrir sér hvort þessi leiðinlegu ummæli höfðu áhrif á hana.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum