Íslendingar freista þess að vinna sinn fyrsta sigur á Frökkum síðan á HM 2007, en liðið hefur eins mark forystu í hálfleik í leik liðanna á Ólympíuleikunum í London. Íslendingar náðu mest fimm marka forystu, 14-9, en í kjölfar þriggja brottvísana hjá íslenska liðinu náðu Frakkar að jafna 15-15. Ólafur Stefánsson náði hins vegar að skora síðasta mark hálfleiksins og koma Íslendingum þar með aftur yfir, 16-15.
Strákarnir hafa skipt mörkunum bróðurlega á milli sín, Alexander Petterson og Róbert Gunnarsson eru með 3 mörk, Ólafur Stefánsson, Aron Pálmarsson, Arnór Atlason og Guðjón Valur Sigurðsson eru allir með tvö mörk og þeir Snorri Steinn Guðjónsson og Ingimundur Ingimundarson hafa skorað sitt markið hvor. Hjá Frökkum hefur Jérôme Fernandez dregið vaginn og skorað fimm mörk.
Íslendingar mættu Frökkum í úrslitaleiknum á Ólympíuleikunum í Peking fyrir fjórum árum en þá höfðu Frakkar sigur. Nú er spurningin hvort strákunum takist að hefna fyrir þann leik í kvöld.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013