Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
09:44 › 3. ágúst 2012
Það var stutt glíman hjá Þormóði Jónssyni júdókappa sem féll úr leik strax í fyrstu umferð, 64 manna úrslitum í +100 kg flokki á Ólympíuleikunum. Þormóður tapaði fyrir þriðja besta júdómanni heims, Rafael Silva frá Brasilíu.
Glíman hafði aðeins staðið í 1 mínútu og 48 sekúndur þegar Silva náði ipponi. Ekki er hægt að fá uppreisnarglímu í fyrstu umferð á ÓL og Þormóður er því úr leik.

Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi