Það verður Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, sem tekur við sem nýr þjálfari karlalandsliðsins í handbolta og fær það verðuga verkefni að ná viðlíka árangri og forveri hans Guðmundur Þ. Guðmundsson sem lét af störfum eftir Ólympíuleikana í London á dögunum.
Frá þessu var greint á blaðamannafundi HSÍ nú fyrir stundu.
Fyrsta verkefni Arons verður að stýra strákunum okkar í undankeppni EM 2014 og svo hefst HM á Spáni í janúar næstkomandi.
Aron mun stýra Haukum í eitt af þeim tveimur árum sem hann á eftir af samningi sínum við félagið. Spurt var að því á fundinum hvort hreinlega væri löglegt að landsliðsþjálfari þjálfaði einnig lið í efstu deild á Íslandi. Var staðfest af forsvarsmönnum HSÍ að svo væri ekki samkvæmt reglugerð. Þeir séu þó á því að ráðningin sé lögleg þar sem reglugerðin sé úrelt.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013