West Brom burstuðu Liverpool á útivelli í dag með 3-0 í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar, sem hófst í dag. Daniel Agger hjá heimamönnunum í Liverpool fékk rauða spjaldið í síðari hálfleik.
Brendan Rodgers stýrði Liverpool í fyrsta skipti í dag. Skotinn Steven Clarke, stjóri West Brom fagnaði sætum sigri en hann var í þjálfarateymi Liverpool á síðustu leiktíð. Þá var landi hans Kenny Dalglish liðstjóri Liverpool.
Tap Liverpool er versta tap félagsins í efstu deild síðan árið 1937. Þá tapaði liðið 6-1 á útivelli gegn Chelsea.
Fulham sigraði Norwich með fimm mörkum gegn engu í dag en Swansea sigraði QPR með sömu markatölu á Loftus Road.
Arsenal gerði jafntefli við Sunderland á heimavelli en Reading náðu stigi gegn Stoke með marki úr vítaspyrnu á lokamínútunum.
Þá sigraði West Ham Aston Villa með einu marki gegn engu.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013