Svindlað á Ólympíuleikunum

Nadzeya Ostapchuk lenti alltaf í öðru sæti í fyrra, hún þráði gullið of heitt og tók stera

Hvít-Rússinn Nadzeyja Ostapchuk kastaði lengst allra kvenna á Ólympíuleikunum í London. Henni tókst þar að vinna sinn helsta keppinaut í sportinu, Valerie Adams frá Nýja-Sjálandii. Hún hreppti gullverðlaun en var stoppuð í tollinum, ef svo má að orði komast.

Eftir að hafa gengist undir lyfjapróf kom í ljós að Ostapchuk hafði sprautað sig með anabólískum sterum, til þess að kasta lengra. Þetta var gert opinbert á mánudaginn. Hún var í kjölfarið svipt verðlaununum og keppinauturinn Valerie Adams vann því gullið, enn eina ferðina.

Sagði eftirliti í Jamaíku ábótavant

Ostapchuk er ekki eini íþróttamaðurinn sem hafði rangt við á Ólympíuleikunum. Þeir eru orðnir tólf talsins. Lyfjanotkun hefur einnig verið til umræðu í tengslum við leikana. Þannig lét gamla brýnið Carl Lewis, margfaldur Ólympíumeistari á sínum tíma, hafa eftir sér, þegar hann var spurður um gott gengi hlaupara frá Jamaíka, að honum þætti lyfjaeftirliti landinu ábótavant.

Þetta féll vægast sagt í grýttan jarðveg hjá Ólympíumeistaranum Usain Bolt. „Það sem hann sagði um spretthlaupara er niðurlægjandi. Hann gefur í skyn að þetta snúist allt um dóp og lyf. Ég ber enga virðingu fyrir manninum lengur,“ sagði þessi mikli íþróttamaður. Þess má geta að íþróttamennirnir frá Jamaíku unnu hver verðlaunin á fætur öðrum í spretthlaupum á leikunum.

Áskrifendur geta lesið umfjöllunina í heild sinni með því að smella á „Meira“.

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.