Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
10:15 › 12. ágúst 2012
Kári Steinn Karlsson hleypur núna maraþon á Ólympíuleikunum um götur Lundúna. Hlaupið byrjaði klukkan 10.
Sem stendur er hann ekki meðal þeirra fremstu í hlaupinu en hann ætlaði að taka fyrri hluta hlaupsins skynsamlega og pressa svo gríðarlega seinni hlutann.
Brautin þykir nokkuð hæg en Kári Steinn hefur sagt að hann vonaðist til að slá Íslandsmetið sem hann setti í Berlín í fyrra og tryggði honum þátttökurétt á Ólympíuleikunum.

Hemmi Gunn fallinn frá