„Þetta var fallega gert af honum. Takk félagi,“ segir skoski framherjinn Steven Lennon á Twitter-síðu sinni á þriðjudag eftir að hafa fengið heimsókn á FH-ingnum Jóni Jónssyni sem færði honum gjafir. Forsaga málsins er sú að Jón tæklaði Lennon í leik FH og Fram á mánudagskvöld með þeim afleiðingum að Lennon slasaðist illa. Þríbrotnaði á rist og leikur ekki meira með Fram á tímabilinu.
Meiðslin eru Fram liðinu mikið áfall enda er Lennon einn þeirra besti leikmaður, þrátt fyrir að hafa lent upp á kant við forráðamenn félagsins á dögunum þegar þeir höfnuðu tilboði KR í hann.
Fyrir brotið fékk Jón sitt annað gula spjald í leiknum og þar með rautt og þóttu viðbrögð hans er hann gekk til búningsherbergja í Laugadalnum ekki til fyrirmyndar. Hann var þó fljótur til að biðja Lennon afsökunar á því að hafa meitt hann í viðtali eftir leikinn í Pepsi-mörkunum á Stöð 2 Sport. Þar ávarpaði hann Lennon beint á ensku og var einlægnin uppmáluð. Þá mun hann einnig hafa rætt við Lennon persónulega.
Á þriðjudag var svo ljóst að meiðsl Lennons væru alvarleg. Jón lét ekki þar við sitja og ákvað greinilega að heimsækja Lennon sem var miður sín yfir því að tímabilinu væri lokið vegna meiðslanna.
Jón færði Lennon DVD-diska, tölvuleiki og eintak af hljómplötunni hans. Og Lennon kunni vel að meta hugulsemina. Jón skildi þá einnig eftir skilboð á Twitter-síðu hans:
„Mér þykir þetta innilega leitt. Ég vona að þú jafnir þig eins skjótt og auðið er. Þá getur þú hjálpað mér við að vinna í að skora með vinstri.“

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013