Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
10:53 › 1. ágúst 2012
Hrafnhildur Lúthersdóttir, sundkona úr Sundfélagi Hafnarfjarðar, var talsvert frá sínu besta í undanrásum í 200 metra bringusundi á Ólympíuleikunum í London í morgun.
Eins og áður hefur komið fram hefur Hrafnhildur glímt við meiðsli undanfarið, en hún slasaðist á olnboga rétt fyrir leikana, eftir komuna til London.
Hrafnhildur varð þriðja sæti í sínum riðli en hún synti á 2:29,60 mínútum, það er rúmum tveimur sekúndum frá Íslandsmeti hennar sem sett var í vor og var 2:27,11.
Í viðtali á Vísir.is segist Hrafnhildur vera sátt, tíminn hafi verið betri en hún hélt að hún myndi synda á í ljósi aðstæðna.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013