Kanadíski körfuknattleiksmaðurinn Steve Nash er á leið til bandaríska liðsins Los Angeles Lakers frá Phoenix Suns. Þessi 38 ára gamli leikmaður hefur í átta tímabil reynt að landa titli í Phoenix en án árangurs. Með Kobe Bryant og félaga sér við hlið á hann þó meiri líkur á því en með hinu hnignandi liði Suns.
Lakers hafa gert þriggja ára samning upp á 27 milljónir dollara við Nash og fær Suns fjóra valrétti í nýliðavali frá Lakers. Þrálátur orðrómur hafði verið um að Nash færi til New York Knicks en börnin hans áttu stóran þátt í því að hann fór til Lakers. Í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér vegna leikmannaskiptanna sagðist hann hafa valið Lakers til að vera nærri börnum sínum í Phoenix.
Nash hefur tvívegis verið valinn besti leikmaður deildarinnar en hefur þó aldrei komist í úrslit NBA-deildarinnar.
Árið 2010 komst hann í úrslit vesturdeildarinnar en beið þar lægri hlut fyrir Lakers sem hömpuðu NBA-titlinum það árið.
Þrátt fyrir að vera orðinn 38 ára er hann einn af bestu leikstjórnendum deildarinnar. Í fyrra var hann með næst flestar stoðsendingar í leik, 10,7, og var með 12,7 stig að meðaltali í leik og 53,7 prósent skotnýtingu.

Hemmi Gunn fallinn frá