„Hjá Liverpool hefði Gylfi fengið frábært tækifæri til að spila undir þjálfara sem þekkir hann hjá alvöru klúbbi, hann ákvað þó að fara til Tottenham,“ segir Brendan Rodgers, þjálfari Liverpool, um ákvörðun íslenska landsliðsmannsins Gylfa Sigurðssonar um að ganga til liðs við Tottenham. Gylfi hefur spilað undir stjórn Rogers hjá Reading og Swansea og var búist við að Gylfi færi til Liverpool til að spila undir sínum gamla þjálfara.
„Gylfi stóð sig frábærlega hjá mér. Við töluðum saman og ég hélt að Gylfi myndi leggja aðaláherslu á að fá að leika knattspyrnu en fjárhagshliðin varð ofan á,“ segir Rodgers á heimasíðu Liverpool í dag en af orðum Rodgers að dæma þá var hann ekki tilbúinn að samþykkja launakröfur Gylfa.
„Ég var ekki tilbúinn að borga meira en það sem hafði verið samþykkt áður,“ sagði Rodgers og vitnaði þar í samkomulag á milli þýska úrvalsdeildarliðsins Hoffeinheim, sem Gylfi var á mála hjá, og enska úrvalsdeildarliðsins Swansea, sem Gylfi lék með á síðustu leiktíð sem lánsmaður.
Brendna Rodgers er þó ekki ósáttur við Gylfa vegna ákvörðunar hans. „Ég óska honum alls hins besta. Hann er góður drengur. Það er ekkert illt á milli okkar. Við höfum augastað á öðrum leikmönnum og höldum okkar striki.“

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013