„Við erum hæstánægð að tilkynna að við höfum lokið við samninga við Gylfa Sigurðsson,“ segir á síðu Tottenham Hotspur nú í morgun.
Þýska blaðið Bild greindi frá því í síðustu viku að enska liðið Tottenham hefði gengið frá kaupum á Gylfa, en þær fréttir hafa verið óstaðfestar þangað til núna. Að sögn Bild ætlaði Tottenham að greiða 10 milljónir evra fyrir Gylfa, sem hafði frest til mánaðarmóta til að ganga frá nýjum samningi.
Gylfi hefur verið eftirsóttur og orðaður við nokkur félög. Margir töldu hann á leið til Liverpool, en undanfarið hefur hann einnig verið orðaður við Tottenham og ef marka má frétt Bild tókst þeim að tryggja sér hann. Gylfi hefur verið á láni hjá Swansea frá Hoffenheim og hafði Swansea reynt að halda leikmanninum hjá sér.

Hemmi Gunn fallinn frá