Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
10:50 › 4. júlí 2012
Talið er að íslenski landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, Gylfi Sigurðsson, muni skrifa undir samning við enska úrvalsdeildarliðið Tottenham innan skamms. Greint er frá þessu á vef SkySports en Gylfi er á mála hjá þýska úrvalsdeildarliðinu Hoffenheim. Hann sló í gegn í ensku úrvalsdeildinni þegar hann var lánaður til Swansea á síðustu leiktíð.
Talið er að Gylfi verði fyrstu kaup nýráðins þjálfara Tottenham Andre Villas-Boas. Gylfi skoraði sjö mörk í nítján leikjum með Swansea og var valinn leikmaður mánaðarins í mars.

Hemmi Gunn fallinn frá