Jakob Jóhann langt frá sínu besta

Hefur lokið keppni á sínum fjórðu Ólympíuleikum

Jakob Jóhann Sveinsson sundkappi úr Ægi synti í morgun í í 200 metra bringusundi á Ólympíuleikunum í London.

Jakob var töluvert frá sínu besta og náði sér ekki á strik í sundinu. Jakob kom síðastur í mark í öðrum riðli á tímanum 2:16,72 mínútum, besti tími hans á þessu ári var 2:13,84 en Íslandsmet hans, set tárið 2009 var 2:12,39 mínútur.

Jakob lauk keppni í morgun, en þess ber að geta að hann er fimmti Íslendingurinn sem hefur keppt á fjórum Ólympíuleikum.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.