Enn einu sinni í aðdraganda Ólympíuleika gera fjölmiðlar sérstaklega mikið úr samkeppninni við hinn stórkostlega sundmann Michael Phelps. En miðað við fyrstu úrslit í sundinu á leikunum í London virðist stjörnuferill Phelps á niðurleið.
Fjölmiðlar virðast hafa mikla þörf fyrir að búa til dramatík í kringum Phelps í sundinu. Á leikunum í Aþenu 2004 var aðalatriðið keppni hans við Ástralann Ian Thorpe.
Fjórum árum síðar í Kína var Hollendingurinn Pieter van den Hoogenband gerður að hans helsta keppinaut og fyrir leikana nú í London birtust greinar eftir greinar í blöðum um æsilega keppni Phelps við landa sinn Ryan Lochte.
Þó Ólympíuleikarnir séu aðeins rétt að hefjast hafa þeir Phelps og Lochte þegar mæst í 400 metra fjórsundi þar sem allir gerðu ráð fyrir að Phelps næði verðlaunasæti. Svo varð þó ekki því stjarnan endaði í fjórða sætinu meðan keppinauturinn Lochte sigraði með töluverðum yfirburðum.
Þjálfari Phelps var með svör á reiðum höndum og sagði undirbúning skjólstæðings síns hafa verið lakari en þörf var á og því hafi Phelps ekki staðið undir væntingum í þessu fyrsta keppnissundi sínu. Sjálfur tók Phelps undir það og viðurkenndi fúslega að fyrstu þrír keppendurnir hefðu einfaldlega synt betur en hann sjálfur.
Phelps á eftir að keppa í allnokkrum greinum næstu dagana og verið getur að hann komi þar á óvart. Það hefur hann gert áður og hann er stórkostlegur íþróttamaður jafnvel þó gjörningar hans utan vallar fari fyrir ofan garð og neðan hjá aðdáendum hans.

Hemmi Gunn fallinn frá