Fyrrverandi leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Glenn Hoddle telur ráðningu félagsins á Andre Villas-Boas vera áhættusama en hvetur þó leikmenn og stuðningsmenn liðsins til að styðja við bakið á nýráðnum þjálfara.
Ráðning Tottenham á þessum 34 ára gamla þjálfara var staðfest í dag en hann tekur við að Harry Redknapp sem var rekinn í júní síðastliðnum eftir fjögurra ára starf hjá liðinu.
Villas-Boas var rekinn frá Chelsea á síðastliðinni leiktíð. Glenn Hoddle er goðsögn á meðal stuðningsmanna Tottenham eftir tólf ára veru hjá liðinu sem leikmaður.
Hann telur að Villas-Boas sé ekki reiðubúinn að þjálfa lið í ensku úrvalsdeildinni.
„Þetta kemur mér á óvart. Ég hélt að Tottenham myndi ekki ráða hann,“ sagði Hoddle við ESPN. „Þetta er mjög áhættusöm ráðning í ljósi gengi hans með Chelsea. Ég held að það væri betra fyrir hann að fara annað og ná árangri þar áður en hann tekst á við ensku úrvalsdeildina,“ segir Hoddle sem telur það hafa verið rangt skref hjá Tottenham að reka Redknapp en liðið verður að styðja Villas-Boas úr því sem komið er að mati hans.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi