150.000 smokkum verður dreift til keppenda á Ólympíuleikunum í London í ár en samkvæmt mörgum Ólympíuförum er nokkuð mikið um samlífi í Ólympíuþorpinu. Hver og einn íþróttamaður fær 15 smokka á mann en það fer greinilega mikið fyrir kynhvötinni þar á bæ, enda flestir í góðu formi. Þetta kemur fram hjá Daily Mail.
Smokkagjöfum á Ólympíuleikunum hefur fjölgað gríðarlega á undanförnum árum. Mikill munur er á milli leikanna í ár og leikanna í Peking árið 2008. Þá var 100.000 smokkum dreift til íþróttafólksins. Hefur því orðið um 50 prósenta aukning milli ára.
Hope Solo, markvörður kvennalandsliðs Bandaríkjanna í fótbolta sagði í viðtali við Daily Mirror: „Það er mikið kynlíf stundað á Ólympíuleikunum. Ég hef séð fólk stunda kynlíf utandyra. Það var bara gert á grasbletti á milli bygginga“ segir Solo, sem viðurkennir að hún hafi sjálf tekið sprett í rúminu árið 2008 í Peking. „En það er Ólympíuleyndarmálið mitt,“ bætir hún við.
Fyrr á árínu kom út bókin The Secret Olympics eftir ónafngreindan höfund, sem á að vera fyrrverandi Ólympíufari frá Bretlandi. Í bókinni er meðal annars fullyrt að keppendur smygli inn vímuefnum s.s. kannabisi í Ólympíuþorpið og að þeir fylli vatnsflöskur af áfengi til að komast í gegnum eftirlitið.
Einnig fjallar bókin ítarlega um bólfarir í Ólympíuþorpinu. „Þegar keppni er lokið eru Ólympíufararnir fullir af orku sem þeir þurfa að brenna. Eins og hreinræktaðir hestar sem hafa ekki komist út lengi geta þeir orðið ágengir.“ segir í bókinni.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013