Krúttleg börn spænsku meistaranna stela athyglinni

Skoppuðu um eftir sögulegan sigur

Það voru ekki leikmenn besta knattspyrnuliðs í Evrópu, og heiminum öllum, sem vöktu mesta athygli eftir að þeir sigruðu Ítali 4 - 0 í úrslitum Evrópumeistarakeppninnar í gær.

Eftir að spænsku leikmennirnir lyftu bikarnum á Ólympíuleikvanginum Í Kiev komu senuþjófarnir skoppandi inn á völlinn. Nokkrir leikmannanna, þar á meðal markakóngurinn Fernando Torres, miðvallarleikmaðurinn Xabi Alonso og markvörðurinn Jose Reina, kölluðu fjölskyldur sínar inn á völlin til að fagna með þeim. Börnin vöktu óskipta athygli, lítil og krúttleg í litlu Spánarbúningunum sínum.

Leikmennirnir og börnin


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.