Villas-Boas um Gylfa: „Þetta var frábært mark“

Knattspyrnustjórinn ánægður með íslenska landsliðsmanninn

Andre Villas-Boas, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Tottenham Hotspur, lofar frammistöðu Gylfa Sigurðsson æfingarleik liðsins gegn Stevenage í gærkvöldi þar sem Tottenham hafði 2-0 sigur.

„Hann býr yfir feykilegum hæfileikum þegar kemur að markaskorun sem hann sýndi á síðustu leiktíð með Swansea,“ sagði Villas-Boas um Gylfa í viðtali á heimasíðu félagsins. „Þetta var frábært mark og mikilvægt fyrir hann.“

Þetta var fyrst leikur Tottenham á undirbúningstímabilinu og jafnframt fyrsti leikur Gylfa með liðinu en hann kom inn á eftir fyrr hálfleik og skoraði stuttu síðar.

Í meðfylgjandi myndbandi má sjá mark Gylfa ef spólað er áfram um eina mínútu og 39 sekúndur.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.