„Ég er í ÍSÍ í gegnum Lyftingasambandið, er að fara í öll lyfjapróf sem allir innan sambandsins fara í og ætti að vera í kjörgeng í valið um íþróttamann ársins,“ segir nýkrýndur heimsmeistari í Crossfit, Annie Mist Þórisdóttir, við Fréttablaðið.
Mikil umræða skapaðist í fyrra um kjörgengi Annie Mist eftir að hún hampaði heimsmeistaratitlinum og er sú umræða komin á kreik á ný eftir að hún sigraði á heimsleikunum í Crossfit í Los Angeles í Bandaríkjunum annað árið í röð á sunnudag.
„Árið 2007 var reglunum um kjörið breytt. Fyrir þann tíma gat hver sem er orðið íþróttamaður ársins jafnvel þótt sá væri ekki innan ÍSÍ. Reglurnar voru hertar og rammi settur utan um kjörið. Rauði þráðurinn í þessu er að Crossfit er ekki skilgreint sem íþrótt,“ segir Sigurður Elvar Þórólfsson, formaður Samtaka íþróttafréttamanna, í samtali við Fréttablaðið um málið.
Fyrir að hampa heimsmeistaratitlinum í Crossfit hlaut Annie 250 þúsund Bandaríkjadollara, eða sem nemur um 32,3 milljónum íslenskra króna.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013