Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
10:33 › 15. júlí 2012
Annie Mist Þórisdóttir er nú í fyrsta sæti í kvennaflokki á heimsmeistaramótinu Reebok CrossFit Games. Mótið hófst á miðvikudaginn en síðasti dagur mótsins fer fram í dag.
Staðan leit ekki sérlega vel út fyrir Annie fyrstu dagana en núna um helgina náði hún hins vegar góðum sprettum og skaut sér upp í fyrsta sæti. Spennandi verður að sjá hvernig mótið mun enda en þess má geta að Annie vann mótið í fyrra.
17 Íslendingar taka þátt í mótinu, þ.á.m. Hilmar Harðarson sem er í fjórða sæti í flokki karlmanna á aldrinum 55-59 ára.
Sigurvegari mótsins fær nafnbótina „fittest on earth“ eða „hraustastur/hraustust á jörðinni“.

Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi