Hrafnhildur Lúthersdóttir varð í þriðja sæti í 100 metra bringusundi á fyrri keppnisdegi Mare Nostrum-mótsins í Mónakó í dag. Þá var hún aðeins 2/100 frá Íslandsmetinu sem hún setti á Evrópumeistaramótinu í maí, 1.09,68.
Anton Sveinn McKee lenti í sjötta sæti í 400 metra skriðsundi á tímanum 3.59,69 en hann og Örn Arnarson deila Íslandsmetinu sem er 3.56,91.
Eygló Ósk Gústafsdóttir synti á tímanum 1.03,68 í 100 metra flugsundi en hún setti stúlknamet í greininni í undanrásum í morgun þegar hún synti á 1.03,46. Íslandsmetið á Sarah Blake Bateman með 59.93.
Árni Már Árnason synti 50 metra skriðsund á tímanum 23.31 en Íslandsmetið, sem hann á sjálfur, er 22.35.
Ragnheiður Ragnarsdóttir synti einnig 50 metra skriðsund á tímanum 26.72 en Sarah Blake Bateman á Íslandsmetið með 25.24.
Inga Elin Cryer synti 200 metra skriðsund á tímanum 2.05.54 en Íslandsmetið 2.03.08 á Eygló Ósk Gústafsdóttir.
Mare Nostrum-mótið heldur áfram á morgun.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum