Thunder í úrslit NBA-deildarinnar í fyrsta skiptið

Leiðin að úrslitunum fremur mögnuð

Oklahoma City Thunder mun leika um NBA-meistaratitilinn í fyrsta skiptið í sögu félagsins. Liðið lagði San Antonio Spurs með 107 stigum gegn 99 stigum. Leiðin sem þeir hafa farið að þessum áfanga er fremur mögnuð þegar hugsað er til þess að liðið hefur slegið út Dallas Mavericks, Los Angeles Lakers og San Antonio Spurs en þessi lið státa af 10 af síðustu 13 meistaratitlum í NBA-deildinni.

Liðið mun annaðhvort mæta Miami Heat eða Boston Celtics en þessi lið mætast í Boston í kvöld þar sem Celtics leiða úrslitaeinvígi austurdeildarinnar með þremur sigrum gegn tveimur. Með sigri í kvöld mæta Celtics Thunder í úrslitum austurdeildarinnar en búast má við hörku leik í kvöld þar sem Miami Heat berst fyrir lífi sínu.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.