Oklahoma City Thunder tók forystuna í úrslitaeinvígi vesturdeildar NBA deildarinnar í nótt þegar það sigraði San Antonio Spurs á heimavelli Spurs og komst því í 3-2 í rimmu liðanna. Thunder getur því klárað einvígið á heimavelli annað kvöld. Thunder skoraði 108 stig gegn 103 stigum Spurs.
Kevin Durant skoraði 27 stig, Russell Westbrook 23 og James Harden 20 stig fyrir Thunder.
Spurs eiga á hættu að endurupplifa vonbrigðin sem fylgdu úrslitakeppninni árið 2004. Þá höfðu Spurs unnið sautján leiki í röð eftir að hafa komist 2-0 yfir gegn LA Lakers. Manu Ginobili, Tim Duncan, og Tony Parker voru þá, eins og í dag, aðalmenn liðsins en eftir að hafa komist í 2-0 gegn Lakers töpuðu þeir fjórum leikjum í röð og voru slegnir út. Eftir að hafa unnið tuttugu leiki í röð í ár þegar liðið komst í 2-0 gegn Thunder þá hafa Spurs tapað þremur í röð og eru í virkilega slæmum málum.

Hemmi Gunn fallinn frá