Ástæðan fyrir því að knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson er líklega ekki á leið til Liverpool er að hann gerir of háar launakröfur. Þetta kemur fram á vefsíðu Liverpool Echo, staðarblaðs í Liverpool.
Þar er gerð skoðanakönnun þar sem spurt er hvort lesendur telji að félagið eigi að láta undan háum launakröfum leikmannsins. Þegar þetta er skrifað eru 87% svarenda á þeirri skoðun að það eigi félagið ekki að gera.
Upphæðin sem Gylfi Þór er sagður vilja í laun er 50% hærri en félagið er reiðubúið að borga honum, að því er fram kemur á vefsíðunni. Þar segir líka að Gylfi Þór muni undirgangast læknisskoðun hjá Tottenham á föstudag.
Það var þýska blaðið Bild sem fyrst greindi frá því að Hoffenheim hefði samþykkt kauptilboð Tottenham í Gylfa Þór.
Sigurður Aðalsteinsson, faðir knattspyrnumannsins Gylfa Þórs Sigurðssonar, sagði í Bítinu á Bylgjunni í gærmorgun að Gylfi hefði enn ekki gert upp við sig hvar hann leiki knattspyrnu á næsta keppnistímabili.
Gylfi Þór sló í gegn sem lánsmaður í ensku úrvalsdeildinni með Swansea síðasta vetur. Hann skoraði sjö mörk og lagði upp þrjú eftir áramót. Swansea tilkynnti eftir að leiktíðin kláraðist að það hefði náð samkomulagi við Hoffenheim og Gylfa Þór um kaup á leikmanninum. Það samkomulag komst í uppnám þegar Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Swansea og maðurinn sem gaf Gylfa tækifæri á Englandi, skrifaði undir samning við Liverpool. Í kjölfarið hefur Gylfi þráfaldlega verið orðaður við Liverpool.
Knattspyrnuhetjan Alan Shearer er einn þeirra sem hefur staðhæft á Twitter að Gylfi Þór væri á leið til félagsins. Frá Gylfa sjálfum hafa aðeins borist þær fréttir að hann hafi rætt við þau lið sem sýnt hafi honum áhuga. Þess má geta að auk Liverpool og Tottenham hefur Gylfi verið orðaður við Manchester United, QPR og Swansea.
Málið tók u-beygju á mánudag þegar þær fréttir bárust að Tottenham hefði náð samkomulagi við Hoffenheim um kaupin. Kaupverðið er sagt 10 milljónir evra eða hálfur annar milljarður íslenskra króna. Þessi tíðindi hafa ekki verið staðfest, ekki af Gylfa, ekki Tottenham og ekki Hoffenheim. Faðir hans sagði á Bylgjunni að tilkynnt yrði um samning í næstu viku – en gaf ekki upp við hverja.
Svo virðist sem Tottenham sé komið í bílstjórasætið hvað málið varðar en rétt er að ítreka að ekkert hefur verið staðfest í þessum efnum.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013