Englendingar töpuðu fyrir Ítölum í síðasta leik átta liða úrslita á Evrópumótinu í knattspyrnu rétt í þessu. Gianluigi Buffon var hetja Ítala og varði tvær vítaspyrnur af fimm.
Englendingar náðu ekki að skora úr tveimur vítum. Ashley Young skaut í þverslá og Buffon, markvörður Ítala, greip skot Ashleys Cole. Ítalski snillingurinn Andrea Pirlo var svellkaldur þegar hann vippaði boltanum í mitt markið, en Joe Hart, markvörður Englands, stökk í vinstra hornið.
Ítalir réðu lögum og lofum í leiknum. Þeir áttu 36 skot og þar af fóru 8 á markið. Englendingar áttu 9 skot og aðeins eitt á markið. Ítalir voru með boltann 68% leiksins og áttu meira en tvöfalt fleiri sendingar en Englendingar.
Úrslitin þýða að Englendingar eru úr leik en Ítalir mæta Þjóðverjum í undanúrslitum keppninnar. Á miðvikudagskvöld mætast Spánverjar og Portúgalar í Íberíuslag um að komast í úrslitin.
Hér má sjá ótrúlega vítaspyrnu Pirlo

Hemmi Gunn fallinn frá