Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
20:45 › 22. júní 2012
Þjóðverjar fóru auðveldlega í undanúrslit Evrópumótsins í knattspyrnu með 4-2 sigri á Grikklandi. Sigur Þjóðverja var nánast aldrei í hættu en þeir réðu leiknum frá upphafi til enda. Grikkir náðu að jafna metin 1-1 með óvæntu marki úr skyndisókn. Þá settu Þjóðverjar í annan gír og skoruðu þrjú mörk í röð. Grikkir fengu síðan vítaspyrnu þegar boltanum var sparkað í hönd Jérôme Botateng og nýttu sér þá spyrnu. Sigur Þjóðverja var þó aldrei í hættu.
Mörk Þjóðverja skoruðu Philipp Lahm, Sami Khedira, Maro Reus og Miroslav Klose. Mörk Grikkja skoruðu Georgio Samaras og Dimitris Salpingidis.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum