Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
20:43 › 21. júní 2012
Cristiano Ronaldo var hetja Portúgala þegar hann skoraði eina mark Portúgala í sigri gegn Tékkum í átta liða úrslitum Evrópumótsins í knattspyrnu. Leikurinn einkenndist af baráttu beggja liða en það var Ronaldo sem skallaði boltann í mark Tékka á 79. mínútu eftir góða fyrirgjöf frá Moutinho. Portúgalar eru því fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum mótsins en á morgun eigast við ríkjandi Evrópumeistarar Spánverjar og Frakkar.

Hemmi Gunn fallinn frá