Ítalski sóknarmaðurinn Alessandro Diamanti segir Ítali ekki óttast Englendinga og hefur fulla trú á að lið sitt fari áfram í undanúrslit Evrópumótsins í knattspyrnu. Það bjuggust flestir við því að Frakkar myndu verma efsta sætið í D-riðli en eftir óvænt 2-0 tap gegn Svíum í lokaleiknum og með sigri Englendinga á Úkraínu þá var niðurstaðan sú að Englendingar fara áfram í átta liða úrslit mótsins en Frakkar urðu í öðru sæti.
Það þýðir að Frakkar munu mæta ógnarsterku liði Spánverja og Englendingar mæta Ítölum.
Diamanti spilar fyrir ítalska úrvalsdeildarliðið Bologna en hefur leikið á Englandi fyrir enska úrvalsdeildarliðið West Ham. Hann hefur fulla trú á að lið sitt komist áfram í undanúrslitin.
„Við gerum allt sem við getum til að komast í undanúrslitin,“ sagði Diamanti. „Ensk knattspyrna er þrjátíu árum á undan ítalskri knattspyrnu þegar kemur að leikvöngum og áhangendum. En þegar kemur að leiknum sjálfum þá erum við sterkari en Englendingar og eru mun meiri gæði í okkar leik. Við virðum Englendinga en óttumst þá ekki,“ sagði Diamanti á blaðamannafundi í dag.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013