Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
21:22 › 18. júní 2012
Það eru Ítalir og Spánverjar sem fara upp úr C-riðli á Evrópumótinu í knattspyrnu eftir leiki kvöldsins. Ítalir unnu Íra með tveimur mörkum gegn einu og Spánverjar unnu Króata með einu marki gegn engu. Króatar urðu að vinna Spánverjar eftir að ljóst var að Ítalir færu með sigur gegn Írum. Króatar náðu þó ekki að setja mark gegn Spánverjum og hafa því lokið keppni.
Spánverjar enduðu í efsta sæti riðilsins með 7 stig en Ítalir urðu í öðru sæti með fimm stig.
Mark Spánverja gegn Króötum skoraði Jesús Navas en Anonio Cassano og Mario Balotelli skoruðu mörk Ítala í leiknum.

Hemmi Gunn fallinn frá