Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
21:46 › 17. júní 2012
Argentínski tennisleikarinn David Nalbandian var dæmdur úr leik í úrslitaleik AEGON-mótsins í dag eftir að hann slasaði línudómara. Hinn þrítugi Nalbandian vann fyrsta settið gegn Marin Cilic í Lundúnum en brást ókvæða þegar fór að síga á ógæfuhliðina í leiknum og sparkaði í auglýsingarskilti með þeim afleiðingum að það hafnaði á línudómaranum sem blóðgaðist.
„Ég sé eftir þessu. Við verðum oft pirraðir á vellinum og er erfitt að hafa stjórn á skapinu. Þetta voru mistök og er sárt að hafa endað úrslitaleikinn svona en þetta eru mistök sem ég þarf að lifa með,“ sagði Nalbandian eftir leikinn.
Harmleikur á Egilsstöðum
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi