Ronaldo hetja Portúgala

Þjóðverjar og Portúgalar áfram úr B-riðli

Cristiano Ronaldo var hetja Portúgala þegar hann skoraði bæði mörk liðsins í sigri gegn Hollendingum á Evrópumótinu í knattspyrnu. Gerði sigurinn það að verkum að Portúgalar fara áfram úr B-riðli ásamt Þjóðverjum sem voru efstir í riðlinum með fullt hús stiga.

Það var Rafael Van der Vaart sem skoraði mark Hollendinga sem fara heim með ekkert stig en þeir voru taldir meðal þeirra liða sem voru líklegust til að fara alla leið í úrslitaleikinn fyrir mótið.

Þjóðverjar sigruðu Dani í kvöld með tveimur mörkum gegn einu. Mörk Þjóðverja skoruðu Lukas Podolski og Lars Bender en Michael Krohn-Dehli skoraði mark Dana.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.