Rannsaka hegðun enskra stuðningsmanna í leik gegn Svíum

Reyndu að ryðjast inn á völlinn

Evrópska knattspyrnusambandið hefur hafið rannsókn á hegðun stuðningsmanna enska landsliðsins í knattspyrnu sem gerðu sig líklega til að ryðjast inn á Ólympíuleikvanginn í Kænugarði á meðan leik Englands og Svíþjóðar stóð á föstudag í D-riðli Evrópumótsins í knattspyrnu sem haldið er í Úkraínu og Póllandi.

Leiknum lauk með 3-2 sigri Englendinga en atvikið átti sér stað þegar Theo Walcott jafnaði metin þegar hann skoraði annað mark Englendinga í leiknum. Í yfirlýsingu frá evrópska knattspyrnusambandinu er þetta talin óásættanleg hegðun af hálfu stuðningsmannanna og beinist gagnrýnin aðallega gegn breska knattspyrnusambandinu.

Eftir að hafa gert jafntefli við Frakka í fyrsta leiknum og sigraði Svía í öðrum leiknum nægir Englendingum jafntefli gegn Úkraínu til að komast upp úr riðlinum. Svíar eiga hins vegar enga möguleika á að komast upp úr riðlinum eftir að hafa tapað fyrstu tveim leikjunum.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.