Grétar Rafn Steinsson og ellefu aðrir leikmenn enska knattspyrnuliðsins Bolton Wanderers fá ekki nýjan samning hjá félaginu sem féll úr ensku úrvalsdeildinni á nýliðinni leiktíð. AFP fréttastofan greinir frá því að auk Grétars hafi þeir Paul Robinson, Sean Davis, Robbie Blake, Ricardo Gardner, Ivan Klasnic, Mark Connolly, Tope Obadeyi, Rhys Bennett, Dino Fazlic og Tom Eckersley verið leystir undan samningi.
Samningur Grétars við Bolton hefði runnið út í sumar en hann var keyptur til liðsins frá AZ Alkmaar í Hollandi árið 2008 fyrir 3,5 milljónir punda. Það var þá hæsta upphæð sem Bolton hafði greitt fyrir varnarmann. Á fjórum árum hjá liðinu lék hann 126 leiki og skoraði 5 mörk.
Nigel Reo-Coker, miðjumaður Bolton, hefur ákveðið að virkja fallklausu í samningi sínum og fékk sig lausan frá liðinu.
Fyrirliði liðsins, hinn hundtryggi reynslubolti, Kevin Davies hefur hins vegar skrifað undir nýjan samning og það sama má segja um varnarmanninn Sam Ricketts. Owen Coyle og Bolton eiga þá í viðræðum við markvörðinn Jussi Jaaskelainen og Zat Knight um samninga þeirra.
„Ég vil þakka öllum þeim leikmönnum sem yfirgefa nú félagið fyrir vinnuframlag þeirra. Við óskum þeim alls hins besta,“ lætur Coyle hafa eftir sér.
Ricardo Gardner hefur verið hjá Bolton í 14 ár svo ljóst er að hreinsanirnar eru miklar og blóðugar hjá Boltan.

Hemmi Gunn fallinn frá