Brendan Rodgers er nýr stjóri Liverpool

„Ég er einstaklega lánsamur“

Brendan Rodgers var í dag kynntur sem nýr stjóri enska knattspyrnufélagsins Liverpool. Hann tekur við af Kenny Dalglish sem var rekinn á dögunum og með ráðningunni lýkur miklu óvissutímabili hjá félaginu sem virtist ætla að ganga illa að finna sér nýjan stjóra.

Roberto Martinez, stjóri Wigan, átti í viðræðum við eigendur Liverpool og virtist hreint formsatriði að hann tæki við liðinu þar til skyndilega flosnaði upp úr.

Rodgers, sem yfirgefur nýliða Swansea sem slógu í gegn á tímabilinu, segist vera í skýjunum með nýja starfið.

„Ég er einstaklega lánsamur,“ sagði hann á blaðamannafundi á Anfield í morgun. „Ég er afar stoltur eins og þið getið rétt ímyndað ykkur. Ég er aðeins annar norðurírski stjórinn í sögu félagsins. Og þetta er félag með mikla sögu.“

Auðveld ákvörðun

Rodgers hafði upphaflega hafnað tilboði Liverpool um að fara í viðræður um starfið en hann segir að það hafi verið einfalt að svara eigendum liðsins þegar ljóst var hann væri efsti maður á blaði hjá þeim. (Líklega eftir að Martinez var horfinn úr myndinni).

„Þegar Liverpool kom að máli við mig í annað skipti og sögðu að ég væri þeirra fyrsta val þá varð ég að hugsa alvarlega um málið. Ég ræddi við stjórnarformann Swansea, Huw Jenkins sem er frábær náungi, og hann gaf mér leyfi til að fara í viðræður við Liverpool. Eftir það var þetta auðveld ákvörðun.“

Skapandi sóknarbolti

Rodgers, hefur hefur vakið mikla athygli fyrir þann leikstíl sem hann hefur látið Swansea spila, fær nú það erfiða verkefni að rétta af lóðrétt hrap Liverpool í ensku úrvalsdeildinni og fremur slakt gengi undanfarin ár.

„Knattspyrnumenn vilja læra og þeir vilja bæta sig. Það er nokkuð sem ég hef gert með öllum tegundum leikmanna sem ég hef stýrt í gegnum tíðina, ungum jafnt sem öldnum. Þetta er langtímaáætlun fyrir mér, og það er mér mikilvægt. Fyrst og fremst vill ég verja grunngildi þessa sögufræga klúbbs. Sem er að spila skapandi sóknarbolta en af tilheyrandi aga.“

Skoðar hvort hann styrki liðið

Rodgers segir það markmiðið sé að sjálfsögðu að reyna að vinna fyrsta deildartitil liðsins í rúm 20 ár. En það muni væntanlega taka einhvern tíma fyrir leikmenn að tileinka sér hugmyndafræði hans og leikstíl „Það mun taka tíma en leikstíllinn byggist á þeim leikmönnum sem þú hefur til að vinna með. Ég mun líta á hvað ég er með í höndunum og sjá til hvort við þurfum að fá einhvern liðsstyrk í kjölfarið.“

Sú undarlega staða er auðvitað komin upp núna að Gylfi Sigurðsson, sem sló í gegn undir stjórn Rodgers hjá Swansea í ár, á enn eftir að ákveða hvort hann skrifi undir samning við félagið. Rodgers og Swansea höfðu náð samkomulagi við Hoffenheim um kaupverð á Gylfa en íslenski landsliðsmaðurinn á enn eftir að skrifa undir. Kannski sem betur fer fyrir hann.

Orðrómur er uppi um að Gylfi fylgi Rodgers til Liverpool, en Gylfi hefur enga ákvörðun tekið og ekki viljað tjá sig um málið við fjölmiðla.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.